Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Skipulagsdagur 20.08.2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 13 ágúst 2010 11:21

Kæru foreldrar!

Föstudaginn 20. ágúst 2010 verður skipulagsdagur hér í Arnarborg og leikskólinn því lokaður frá klukkan 12:00 á hádegi.

 

Með kærri kveðju,
starfsfólk Arnarborgar.
 

 

Dear parents!

The school will be closed August 20th from 12:00 noon due to an organzation day.


Best regards,
the teachers of Arnarborgar.
 

 
Dótadagur í Arnarborg Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 10 júní 2010 16:18

    Á morgun 11.júní verður dótadagur í Arnarborg, þá mega börnin koma með leikföng að heiman. Við ítrekum þó að vopn eru ekki æskileg og að leikföngin eru á ábyrgð foreldra!

 
Alltaf fjör á Brúðubílnum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 10 júní 2010 14:02

Í gær fóru öll börnin að sjá Brúðubílinn út á Bakkatúni. Að þessu sinni var boðið upp á sýningu sem kallaðist afmælisveislan þar sem að Helga Steffensen á 30 ára starfsafmæli þetta árið. Að venju skemmtu börnin sér konunglega enda margar skemmtilegar brúður sem létu sjá sig eins og td. Lilli, Blárefurinn, Svarti Svalur og síðast en ekki síst Doddi dónadúskur en hann var nú svolítið dónalegur og vildi ólmur prumpa á börnin

 
Stoltir útskriftarnemendur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 21 maí 2010 14:51

Útskrift elstu barnanna í SkólahópÚtskrift elstu barnanna í Arnarborg fór fram í morgun. Hópurinn söng nokkur vel valin lög fyrir gestina og sýndu svo dans sem þau eru búin að vera að æfa í vetur. Þetta var rosalega flott hjá þeim og stóðu þau sig ekkert smá vel! Við erum að sjálfsögðu ótrúlega stolt af börnunum okkar og eigum eftir að sakna þeirra alveg hrikalega mikið. Börnin fengu svo afhendar möppurnar sínar og að lokum var að sjálfsögðu boðið upp á veitingar eins og í alvöru útskriftarveislum.

Við þökkum foreldrum og öðrum gestum kærlega fyrir komuna og flottan útskriftardag!

Myndir af útskriftinni má sjá á myndasíðunni 
 

 

 

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 7

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Arnarborg | Maríubakka 1 | 109 Reykjavík | Sími: 557-3090 | Póstur | Viðburðir | Fréttir