Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Mér finnst rigningin góð....tralalalalala Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 10 júní 2010 14:18

Nú er sumarstarfið komið á fullt hjá okkur. Börnin í útiskólanum eru búin að vera á faraldsfæti og fara í ferðir út um allar trissur. Í morgun fóru svo börnin á Tröllaholti í gönguferð um hverfið og fengu að leika sér á róló hér í hverfinu. Þau létu rigninguna ekkert á sig fá og skemmtu sér frábærlega. Það er alveg ótrúlegt hvað það að skipta aðeins um umhverfi getur glatt litla gorma, það að hlaupa upp á grashól var allt í einu heilmikil skemmtun  :)

Áætlað var að fara á Árbæjarsafn í morgun en þar sem veðrið var nú ekki alveg upp á sitt besta til að fara í slíka ferð þá ákváðum við að byrja bara rólega og fara í gönguferð um hverfið. Safnferðin býður því bara betri tíma og veðurs :)

Myndir væntanlegar á heimasíðuna fljótlega!

 

 

 

 
Fréttir af Tröllaholti Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 19 febrúar 2010 17:23

 

Fréttir af Tröllaholti

Vikufréttir Tröllaholts eru komnar inn á síðuna undir deildir- Tröllaholt og að lokum fréttir :)

Eigið góða helgi!

 
Vikufréttir Trölla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 19 febrúar 2010 17:19

 

Vikufréttir Tröllaholts
Hópastarfið þessa vikuna snerist mikið um öskudaginn. Á mánudag og þriðjudag var „tunnan“ fyrir öskudaginn föndruð í hópastarfi barnanna. Að þessu sinni voru reyndar  tvær „tunnur“ en það voru pappakassar sem börnin máluðu og skreyttu. Á öskudaginn var mikil gleði og MIKILL spenningur :) Börnin komu í hinum ýmsu búningum og gerðum við okkur glaðan dag. Allur leikskólinn safnaðist saman í salnum þar sem sungin voru nokkur öskudagslög og svo var „kötturinn“ sleginn úr tunnunni. Öll börnin fengu að slá einu sinni í tunnurnar og svo að lokum starfsfólkið þar til ætlunarverkið tókst og tunnurnar opnuðust og snakkpokarnir duttu út. Eftir þetta fóru börnin svo í sína heimasofu þar sem þau borðuðu snakkið og fengu trópí og ávöxt. Svo var að lokum ball inn í sal þar sem börnin dönsuðu og sungu fram á hádegi. Öskudagsballinu lauk svo með pizzaveislu í hádeginu....Þetta var sko helljarinnar partý og mikið stuð :)
Fimmudagur og föstudagur voru svo bara hefðbundnir með hópastarfi og stig af stigi hjá 2005 árganginum. Í stig af stigi þessa vikuna ræddum við um það að tilfinningar okkar eru ekki alltaf eins í sömu aðstæðunum og okkur finnst ekki alltaf gaman/leiðinlegt að gera sama hlutinn heldur getur það verið breytilegt eftir aðstæðunum. Td. Viljum við stundum leika í kubbunum en ekki alltaf. Eins töluðum við um það að þó svo að vinir okkar vilji ekki leika með það sama og við akkúrat þá stundina að þá þýðir það ekkert endilega að þau vilji ekki leika við okkur og séu hættir að vera vinir okkar, heldur langar þeim kannski bara ekki til þess að leika með dótið sem við viljum leika með akkúrat þá eða þá að þeir eru að gera eitthvað annað sem þá langar til að klára. Ræddum í framhaldi af því hvaða lausnir við gætum fundið svo allir yrðu sáttir :)
Á föstudag voru svo haldin tvö afmæli á Tröllaholti. Ísleifur Karl á afmæli í dag, 19. febrúar og er 5 ára og svo á Logi Snær afmæli á morgun, 20.febrúar og verður 6 ára. Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn :)
Snúlli bangsi fór svo heim með Magnúsi Frey þessa helgina!
Svo eru myndir af öllum herlegheitunum væntanlegar inn á síðuna eftir helgi!
Eigið góða helgi og sjáumst hress á mánudaginn
Kv. Hildur Rut
 
 
Fréttir af Tröllaholti Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
laugardagur, 13 febrúar 2010 12:23

Fréttir af Tröllaholti

 Eins og venjulega er búið að vera nóg að gera hjá börnunum síðastliðna viku. Elstu börnin fóru í hópastarf alla vikuna og gerðu ýmislegt skemmtilegt. Þau unnu ýmis verkefni, fóru í gönguferð á Bókasafnið og fengu lánaðar nýjar bækur og sögur. Eins fóru þau í gönguferð að heimili eins barnsins og að þessu sinni fóru þau „heim til“ Jons sem er á Álfaholti. Börnin hafa í vetur farið vikulega í gönguferð að heimili eins barns í Skólahópnum. Dregið er um hvert á að fara hverju sinni og svo sýnir barnið sem verður fyrir valinu hvar það á heima og börnin fá að leika sér á leikvellinum þar :) Þetta hefur vakið mikla lukku meðal barnanna og finnst þeim þetta mikið sport og er þetta líka gert til þess að börnin þekki hverfið sitt betur og heimili hvers annars áður en skólagangan hefst :)
Árgangar 2005 og 2006 fóru líka í hópastarf í vikunni, að þessu sinni vorum við í Listaholti og fengu því mörg listaverkin að líta dagsins ljós en við erum einmitt byrjaðar að undirbúa okkur fyrir Myndlistasýningu barnanna í Bakkahverfi sem verður núna í apríl! 
2005 árgangurinn fór svo í Stig af Stigi á fimmtudaginn en við höfum ekkert komist í það síðan í desember svo þeim fannst þetta að sjálfsögðu mjög spennandi. Að þessu sinni fórum við yfir það að tilfinningar okkar geta breyst; að okkur þarf ekki að líða eins í sömu aðstæðum hverju sinni. Td. Var maður kannski hræddur að klifra þegar maður var lítill en núna finnst manni það gaman. Eins líka að það líður ekki öllum eins í sömu aðstæðum, einn getur verið hræddur í sundi meðan öðrum finnst það rosalega gaman! Fórum í nokkra leiki í tengslum við þetta og héldum svo að sjálfsögðu áfram að æfa Tilfinningasönginn :)
Á fimmtudag og föstudag snerist svo allt um að föndra bolluvendina og var afraksturinn ákaflega glæsilegur :D
Svo var eitt afmælisbarn í vikunni og jafnframt fyrsta afmælisbarn ársins 2010 á Tröllaholti. Hún Ísabella Auður Nótt varð 4 ára á miðvikudaginn og óskum við henni og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn :)
 Góða helgi :)
Kv. Hildur Rut
 
Hópastarf og Stig af Stigi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 29 október 2009 15:41

Jæja þá er hópastarfið komið á ról á Tröllaholti eftir mikla veikindahrinu, bæði barna og starfsfólks.

Elstu börnin ákvaðu að kalla sig Skólahóp þetta árið. Skólahópur fer í hópastarf alla daga nema föstudaga frá 9-12. Þau eru meðal annars búin að fara í gönguferð og finna sér leynistað og vinna verkefni tengdu því. Hópstjórar elstu barnanna eru Bína og Rannveig.

 Annar hópurinn í 2005 árganginum kaus að nefna hópinn sinn Hvolpahóp. Í þeim hóp eru Francis, Lelja Sara, Róbert, Sigvaldi Rafn og Þórir Símon. Hópstjórinn þeirra er Stefanía og eru þau í hópastarfi á þriðjudögum frá 11-12.

Hinn hópurinn í 2005 árganginum nefndi sinn hóp Strumpahóp. Í þeim hópi eru Andrea Líf, Armandas, Bjarki Kröyer, Daníel Skapti, Ellen Æushma og Ísleifur Karl. Hópstjórinn þeirra er Hildur Rut og eru þau í hópastarfi á miðvikudögum frá 11-12.

Árgangurinn kemur þó eflaust líka til með að gera ýmislegt saman eins og að fara í vettvangsferðir og vinna að hinum ýmsu verkefnum.

Smá breytingar hafa aftur orðið á hópastarfinu hjá 2006 árganginum en við höfum ákveðið að hafa öll börnin saman í hóp en skipta þeim svo kannski frekar upp þegar verið er að vinna að þannig verkefnum sem henta betur fámennum hóp. Þessi hópur ákvað að nefna hópinn sinn Bananahóp og samanstendur hann af Aroni Ásgeiri, Joel Alexander, Ísabellu Auði Nótt, Sólveig Meeru og Viktori Muna. Svo bætast þeir Kajatan Axel og Adam Logi við fljótlega en þeir eru að flytjast yfir til okkar af Dvergaholti. Hópstjórar þessa hóps eru Hanna og Halldóra og eru þau í hópastarfi á þriðjudögum frá 9-10.

 

Stig af Stigi byrjaði í dag hjá 2005 árganginum. Þau fóru öll saman í dag í fyrsta tímann en koma svo til með að vera í tveimur hópum. Stig af Stigi verður á fimmtudögum frá 11-12 í vetur og munu Hildur Rut og Stefanía sjá um það. Börnin fengu svo bréf með sér heim sem segir frá út á hvað þetta gengur og eins fylgdi með textinn af Tilfinningasöngnum sem er sunginn í hverjum tíma ;)

 

 


Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Arnarborg | Maríubakka 1 | 109 Reykjavík | Sími: 557-3090 | Póstur | Viðburðir | Fréttir