|
Arnarborg er þriggja deilda leikskóli til húsa að Maríubakka 1, 109 Reykjavík og er rekinn af Leikskólum Reykjavíkur. Leikskólinn er staðsettur í austurhluta Bakkahverfis með víðfermt og frábært útsýni. Hann hóf starfsemi sína 20. janúar 1972 og var byggt við hann árið 1993.
Deildir leikskólans eru:
Dvergaholt fyrir 1 – 3 ára börn
Álfaholt og Tröllaholt fyrir 3 – 6 ára börn
Leikskólinn er opinn í ellefu stundir en dvalartímar barnanna eru frá fjórum upp í níu stundir daglega. Sextíu og sex börn dvelja samtímis í skólanum.
Í Arnarborg er unnið eftir ársáætlun þar sem helstu viðburðir leikskólastarfsins eru merktir inn á tiltekinn tíma. Dagskipulag er fyrir allar deildir og unnið er út frá því eins og hægt er. Lögð er áhersla á að við upphaf skólagöngu fái barnið og foreldrar þess góða aðlögun eftir fyrirfram ákveðnu aðlögunarferli.
Dagskipulag
Kl. 07:30. Leikskólinn opnar. Tekið er á móti börnunum á Tröllaholti.
Kl. 08:00. Morgunverður í heimastofum.
Kl. 08:45. Samveru- og valstund.
Kl. 09:15. Val eða frjáls leikur.
Kl. 10:15. Ávaxtatími.
Kl. 10:30. Útivera/hópastarf.
Kl. 11:30. Samverustund.
Kl. 12:00. Hádegisverður.
Kl. 12:30. Hvíld.
Kl. 13:00. Útivera.
Kl. 14:30. Samverustund.
Kl. 15:00. Kaffitími.
Kl. 15:30. Frjáls leikur.
Kl. 16:30. Róleg stund.
Kl. 17:00. Börnin fara inn á Tröllaholt/ávaxtatími.
Kl. 17:30. Leikskólinn lokar.
Aðlögun
Markmið:
Góð aðlögun er mjög þýðingarmikil fyrir öryggi barnsins og áframhaldandi dvöl þess í leikskólanum.
Heilsdagsdvöl:
1. dagur. Kl.11:00. Heimsókn í leikskólann.
2. dagur. Kl.08:30. Foreldri dvelur með barninu til kl.11:00.
3. dagur. Kl.08:30. Foreldri dvelur með barninu til kl.11:30 en getur brugðið sér frá inn á kaffistofu.
4. dagur. Kl.08:30. Foreldri dvelur með barninu í u.þ.b. klukkustund, fer þá en kemur aftur kl.12:00 og borðar með barninu.
5. dagur. Kl. 10:00. Foreldri kemur með barnið og kveður
það fljótlega. Kemur síðan aftur kl.14:30 og
fær sér miðdegishressingu með barninu og fer síðan
að henni lokinni.
Leikskólakennari sem tekur á móti barninu sinnir því sérstaklega í aðlöguninni.
Hlutverk foreldris er að styðja barnið meðan það myndar tengsl við starfsfólk leikskólans.
Nauðsynlegt er að foreldri noti aðlögunartímann til að kynnast starfsemi leikskólans, börnunum og starfsfólkinu.
Dagleg samskipti milli starfsmanna, barna og foreldra skipta miklu máli í leikskólastarfi og í Arnarborg er lögð rík áhersla á að heilsast og kveðjast.
|