Sumarlokun í júlí – ágúst 2012 í leikskólanum Borg = Arnarborg/Fálkaborg
Leikskólinn Borg = Arnarborg/Fálkaborg verður lokaður frá fimmtudeginum 19. júlí til 8. ágúst, báðir dagar meðtaldir þannig að opnað verður að nýju fimmtudaginn 9. ágúst. Við höfum aldrei byrjað og endað sumarlokun í miðri viku og þar sem við erum á „kafi“ í breytingastjórnun þetta árið ákváðum við að prófa þessa tímasetningu því í öðrum leikskólum þar sem þetta hefur verið gert kemur þetta mjög vel út fyrir alla hlutaðeigandi.
Þar sem við lokum einungis í þrjár vikur þurfið þið foreldrar/forráðamenn góðir að velja vikuna fyrir lokun eða vikuna eftir lokun fyrir börnin ykkar til að ná fjórum samfeldum vikum í frí eins og kveðið er á um hjá Skóla- og frístundasviði.
Við munum setja upp lista með nöfnum barna ykkar á hverja deild fyrir sig þar sem þið getið merki við hvora vikuna þið kjósið.
Það er ósk okkar og von að allir eigi yndislegt sumarleyfi og við erum búnar að leggja inn beiðni um gott veður☺
Með virðingu og vinsemd.
Hildur og Sigríður í BORG☺



