Print

Tónleikar í salnum

. Ritað í Fálkaborgarfréttir

Í dag vorum við í Borg/Fálkaborg svo heppin að okkur var boðið á tónleika í sal skólans. Rannveig Lovísa á Ugludeild og systur hennar Herdís og Sólveig komu og spiluðu fyrir okkur nokkur lög á hljóðfærin sín. Rannveig og Herdís spila á fiðlu og Sólveig á selló. Börnin sátu hugfangin og hlustuðu og óhætt að segja að þetta hafi verið mikil upplifun fyrir alla. Við þökkum kærlega fyrir þennan fallega tónlistarflutning.