|
Í leikskólanum Arnarborg er starfað samkvæmt lögum um leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla frá árinu 1999.
Í Arnarborg er lögð áhersla á leikinn og að læra í gegnum hann.
Leikurinn er einstakt tæki til náms samanber „það er leikur að læra“. Leikurinn er starf og vinna barnanna og því nauðsynlegt að þau fái að upplifa hluti og atburði að eigin raun. Hann er tjáning þeirra og um leið undirbúningur undir fullorðinsárin. Því er lögð áhersla á að í gegnum leikinn öðlist börnin færni í félagstengslum, setja sig í spor annarra, sjálfstæðri hugsun og frumkvæði. Með því eykst orðaforði og færin í tjáningu.
Valkerfið byggist að mestu leyti á kenningum Piaget.
Markmið með uppeldislegu starfi byggist m.a. á þróun hugsunar og að auka þekkingu. Til að nám geti farið fram þurfa börnin að fá tækifæri til að íhuga, draga ályktanir, bera saman, vera forvitin og uppgötva. Piaget hefur bent á að ef barn læri sjálft að velja og ákveða hafi það möguleika á samvinnu við aðra á sínum forsendum og byggi þá upp sitt eigið sjálfstæða siðferði.
Stefna okkar er að börnin fái gleði og ánægju út úr leikskólastarfinu og það verði þeim hvati og örvun til frekari náms/starfs í framtíðinni. |
|
|
Markmið:
Að efla alhliða þroska barnsins.
Unnið er með námsviðin í öllu starfi leikskólans.
Hreyfing: Í hreyfistundum, garðinum, Stórholti og gönguferðum.
Málrækt: Í samverustundum, hópastarfi, samtölum, vali og hreyfistundum.
Myndsköpun: Í Listaholti, heimastofum og hópastarfi.
Tónlist: Í söngsal, hópastarfi, hreyfistundum, samverustundum og Stórholti.
Náttúra og umhverfi: Í útiveru, garðinum og gönguferðum.
Menning og samfélag: Í samverustundum, hópastarfi og gönguferðum.
Tölvur: Í Smáholti. |
|
Markmið:
Að efla hreyfivirkni og hreyfigetu, hugtakaskilning, félagsþroska, einbeitingu, frumkvæði, hlustun og fara eftir einföldum reglum og fyrirmælum.
Elstu börnin fara í hreyfistundir í leikfimisal Breiðholtsskóla. Yngri börnin fara í hreyfistundir í hópastarfi. Einnig fara börnin í gönguferðir í hópastarfi og sumarvali um næsta nágrenni. Auk þess bíður útileiksvæði barnanna upp á mikla hreyfingu s.s. rólur, hjól, kastala og boltaleiki. |
|
Markmið:
Að efla málvitund barnanna.
Málrækt fer fram í öllu starfi innan leikskólans í formi samtala, sögustunda, söngstunda og nánast hvar og hvenær sem er.
|
|
Markmið:
Að efla sjálfstæði og frumkvæði barnanna í skapandi starfi, auk þess að styrkja fínhreyfingar og lita- og formskyn barnanna.
Myndsköpun fer fram í Listaholti og inni á heimastofum. Leitast er við að börnin kynnist ólíkum efniviði og hafi aðgang að góðum litum og málningu og öðru sem til þarf. |
|
Markmið:
Að æfa sig að syngja í stórum hópi, hlusta, sitja kyrr, nota tákn með tali, hreyfa sig eftir/með tónlist, læra lög og texta, sjálfsstyrkingu og framkomu.
Tilgangur með tónlist er að börnin læri og kynnist henni í öllum sínum fjölbreytileika.
Sungið er í söngsal árdegis alla föstudaga í Stórholti, ásamt daglegum söng inni á heimastofum.
Öll börn leikskólans mæta í söngsal.
Þar fer fram samsöngur, einsöngur, fluttir eru leikþættir og/eða farið með þulur. Afmælissöngur er alltaf sunginn fyrir afmælisbörn vikunnar.
Börnin hlusta á sígilda tónlist í hvíld. |
|
Markmið:
Að efla umhverfisvitund og virðingu fyrir náttúrunni.
Börnin læra um dýr og plöntur t.d. í samverustundum, útiveru. Í gönguferðum læra þau á nánasta umhverfi sitt. |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 2 |