|
|
|
Stoltir útskriftarnemendur |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 21 maí 2010 14:51 |
|
Útskrift elstu barnanna í Arnarborg fór fram í morgun. Hópurinn söng nokkur vel valin lög fyrir gestina og sýndu svo dans sem þau eru búin að vera að æfa í vetur. Þetta var rosalega flott hjá þeim og stóðu þau sig ekkert smá vel! Við erum að sjálfsögðu ótrúlega stolt af börnunum okkar og eigum eftir að sakna þeirra alveg hrikalega mikið. Börnin fengu svo afhendar möppurnar sínar og að lokum var að sjálfsögðu boðið upp á veitingar eins og í alvöru útskriftarveislum.
Við þökkum foreldrum og öðrum gestum kærlega fyrir komuna og flottan útskriftardag!
Myndir af útskriftinni má sjá á myndasíðunni 
|
|
í sveitinni skemmti ég mér, tralalalala..... |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 10 maí 2010 13:49 |
|
Sveitaferð að Grjóteyri.
Á föstudaginn (14.maí) verður okkar árlega sveitaferð að Grjóteyri. Lagt verður af stað frá Arnarborg klukkan 10:30 og er áætluð heimkoma uppúr 14:30. Þessi ferð hefur alltaf heppnast með eindæmum vel og verið frábær í alla staði og eigum við ekki von á öðru þetta árið! Þegar eru fjölmargir búnir að skrá sig og hvetjum við þá sem komast með að gera slíkt hið sama 
Hlökkum til að sjá ykkur |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 2 af 10 |