Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Matur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 30 október 2009 13:33

Þar sem Laurie er að fara í barneignarfrí og ekki hefur fengist matráður í hennar stað verður aðkeyptur matur frá og með 2 nóvember í óákveðinn tíma.

Hollt í hádeginu mun sjá um matinn.

Upplýsingar um fyrirtækið er hægt að fá á vefsíðu þeirra

www.holltihadeginu.is

 
Fréttir af Tröllaholti Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 29 október 2009 15:54

Fréttir af hópastarfinu á Tröllaholti eru komnar inn á síðuna. Hægt er að nálgast fréttir af Tröllaholti bæði undir Fréttir hér vinstra megin eða með því að smella á Deildir og velja þar Tröllaholt og svo útfrá því fréttir :)

kv. Hildur Rut

 
Slökkviliðið í heimsókn. Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 14 október 2009 09:06

Í gær komu tveir slökkviliðsmenn í heimsókn í Leikskólann og fræddu elstu börnin okkar um eldvarnir. Þeir sýndu börnunum dvd mynd, kynntu þeim verkefni sem börnin ætla að vinna að í vetur og sýndu þeim sömuleiðis slökkviálfanna Loga og Glóð sem eru sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðsins í þessu verkefni þeirra. Börnin fengu líka að sjá hvernig slökkviliðsmaður lítur út í fullum skrúða, þe. í slökkvigalla og með reykköfunartæki á sér. Eftir fræðsluna var haldið út þar sem slökkviliðsbílinn var skoðaður, börnin fengu að setjast upp í bílinn og sjá hvað þarf að hafa í einum slökkviliðsbíl og vakti þetta vægt til orða tekið mikla lukku hjá börnunum :)

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 9 af 10

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Arnarborg | Maríubakka 1 | 109 Reykjavík | Sími: 557-3090 | Póstur | Viðburðir | Fréttir