Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Tannverndarvik a 1. - 5. febrúar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 02 febrúar 2010 13:05

 

Hvatning frá leikskólaráði í tilefni tannverndarviku.
Dagana 1. – 5. febrúar n.k. verður hin árlega tannverndarvika, sem
Lýðheilsustöð stendur fyrir en að þessu sinni er athyglinni beint
sérstaklega að tannvernd barna.
Grunnur er lagður að góðri tannheilsu strax í bernsku með góðri munnhirðu
og hollu mataræði, þar gegna leikskólar mikilvægu hlutverki.  Því vill
Leikskólaráð Reykjavíkurborgar  hvetja leikskólakennara til að nýta sér
tannverndarvikuna í því skini að vekja athygli barna og foreldra á
mikilvægi góðrar tannhirðu. Á  heimasíðu Lýðheilsustöðvar,  
www.lydheilsustod.is , er að finna margvíslegt fræðsluefni sem
leikskólakennarar og foreldrar geta nýtt sér.

Kveðja,
Ingibjörg Margrét

 
Ömmu og afa kaffi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 02 febrúar 2010 12:54

Kæru foreldrar

Þann 5. febrúar nk. viljum við bjóða ömmum og öfum barnanna í heimsókn í leikskólann milli kl. 09:00 - 10:00.

Tilgangurinn með heimsókninni er að þau fái innsýn inn í leikskólastarfið og í lok heimsóknarinnar eða um 9:45 ætlum við að fara inn í sal og syngja saman.

Við viljum biðja ykkur að hvetja ömmur og afa að mæta og njóta stundar með barnabörnunum.

Með kærri kveðju, starfsfólk Arnarborgar :)

 

 
Bollu-, Sprengi- og Öskudagur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 29 janúar 2010 11:30

Kæru foreldrar.

Á dagatali sem foreldrar fengu í haust er Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur settir á 22., 23. og 24. febrúar í stað 15., 16. og 17. febrúar. Við biðjumst afsökunar á þessu.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 10

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Arnarborg | Maríubakka 1 | 109 Reykjavík | Sími: 557-3090 | Póstur | Viðburðir | Fréttir