Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Sumarlokun leikskólans Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 03 febrúar 2012 14:36

Sumarlokun:

Leikskólinn verður lokaður frá og með fimmtudeginum 19.júlí til og með 8.ágúst og opnar því aftur fimmtudaginn 9.ágúst.

Þar sem það er einungis lokað í 3 vikur þá þurfið þið að velja hvort þið takið vikuna fyrir lokun eða vikuna eftir lokun í frí fyrir börnin ykkar svo þau nái 4 vikum samfellt í fríi eins og kveður á um í reglum frá skóla-og frístundasviði.

Hengdir verða upp listar á deildum barnanna þar sem þið getið merkt við hvora vikuna þið kjósið að taka!

Vonumst til að allir eigi yndislegt sumarfrí og njóti veðurblíðunnar sem við erum búnar að leggja inn beiðni fyrir :)

 

 
Ömmu- og afakaffi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 30 janúar 2012 11:05

 

Í tilefni af Degi leikskólans sem verður mánudaginn 6.febrúar nk. ætlum við að hafa ömmu-og afakaffi í Arnarborg þann dag á milli klukkan 09:00-10:00.

Við bjóðum ömmur og afa sérstaklega velkomin í heimsókn til okkar en ef þau sjá sér ekki fært um að mæta þá væri gaman ef einhver annar frá barninu eins og foreldrar, frænka eða frændi myndu geta kíkt í heimsókn :)

Vonumst til að sjá sem flesta

kv. Starfsfólk Arnarborgar

 
Áfram Ísland!!!! Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 25 janúar 2012 15:56

 

Mikil stemming var í dag að horfa á Ísland- Frakkland keppa á EM í handboltanum, börnin létu sko vel í sér heyra og fögnuðu mörkum Íslands ákaft :)

 

Við viljum svo minna á að á morgun, fimmtudag, er dótadagur í Arnarborg. Þá mega börnin koma með leikfang að heiman. Við viljum þó ítreka að leikföngin eru algjörlega á ykkar ábyrgð og vopn og önnur stríðsleikföng eru ekki leyfileg.....eins er eitt leikfang á mann alveg nóg :)

Föstudaginn 27.janúar er svo leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags starfsfólks, dagurinn verður nýttur í að skipuleggja starfið og svo verður skyndihjálparnámskeið hálfan daginn!

 

kv. starfsfólk Arnarborgar 

 

 

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 32

Röskun á starfi vegna óveðurs eða öskufalls - Disruption of school operations

Viðburðir

Engir viðburðir eru skráðir á næstunni

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Arnarborg | Maríubakka 1 | 109 Reykjavík | Sími: 557-3090 | Póstur | Viðburðir | Fréttir